9.a Steinunn Ágústsdóttir,
f. 1. sept. 1909 í Grafarósi á Höfðaströnd, Skagf. Húsfreyja á Hofsósi. Steinunn var með stórt heimili og oft marga í mat og á þeim tímum sem verið var að byggja upp frystihúsið þá voru margir aðkomu men sem voru í fæði hjá Steinunni, og margir eftirlitsmenn og allir þessir menn fengu fríttfæði hjá Steinunni. Þegar þetta er skrifað 02. 04. 1999 mun Steinunn vera síðust núlifandi þeirra sem fæddust í Grafarós, Skagaf. Steinunn og Björn áttu 70. ára brúðkaupsafmæli 23. 12. 1999, slíkur atburður mun vera næstum mjög fátíður,
d. 3. okt. 2001 á Sauðárkróki.
– For.:
Sigurður Ágúst Sigurðsson,
f. 31. ág. 1880 í Málmey, bóndi á Arnarstöðum í Sléttuhlíð, Skagaf. 1900-1904, sjómaður frá Grafarós við Hofsós 1910,
d. 17. nóv. 1937 í Hofsós.
– For.:
Sigurður Sigurðsson,
f. 1853 í Þúfum í Óslandshlíð, Skagaf., húsmaður í Hvammkoti á Höfðaströnd, Skagaf. Hvammkot var eign Hofsóss-faktora þá. Sigurður var verkam., í Ártúnum, Krossi, Grafarós, í Skagaf.,Siglunesi og hjá bróður sínum í Málmey. Eftir að foreldrar Sigurðar létust var hann fermdur frá hjónunum Jóni Jónssyni og Kristínu Björnsdóttur í Gröf á Höfðaströnd, Skagaf., og fékk þá góðan vitnisburð. Sigurður var seinustu árin á Hugljótsstöðum Skagf.
– K: 1878.
Sigurbjörg Magnúsdóttir,
f. 23. ág. 1853 á Stóru-Brekku, Fljótum, Skagaf., hafði góðan vitnisburð og vann á ýmsum stöðum. Eftir lát Sigurðar giftist hún ekkjumanninum Einari Ásgrímssyni og bjuggu þau í Málmey Bræðrá og Arnastöðum í Sléttuhlíð, Skagaf., 1900 brá Einar búi og fór þá Sigurbjörg í vinnumensku með börnin,
d. 29. mars 1924.
– K: 1904
Salbjörg Guðfinna Jónsdóttir,
f. 22. júní 1883 í Háakoti í Fljótum, Skagf., húsfreyja í Grafarósi og Hofsósi,
d. 24. febr.1971 á Sauðárkróki.
– For.:
Jón Jónsson,
f.1844 á Sléttu í Fljótum, Skagaf.,
d. 10. des,1911, drukknaði við uppskipun í Haganesvík,
– K:
Kristín Ingibjörg Eiríksdóttir,
f. 1845,
d. 1914 í Höfnum í Fljótum, Skagaf.
– M: 23. desember 1928.
Björn Björnsson,
f. 17. jan. 1906 í Göngustaðakoti, Svarfaðardalshr., Eyf. Frystihússtjóri Hofsósi. Björn gerðist nemi við Hólaskóla 1925 og útskrifaðist þaðan 1927, enn þar kveiknaði ást þeirra. Á sumrin voru þau Björn og Steinunn á ýmsum stöðum sem vinnufólk, til Hofsós komu þau um haustið 1928 og þar vinnur Björn sem verkamaður. Björn stofnar verkamannafélagið Ársæll um 1930 með Kristjáni Ágústssyni og Pétri frá Þangsstöðum, Björn var ritari félagsins. 1932 kaupa þeir Jón Ágústsson, mágur Björns trilluna Valbjörninn og róa á honum og salta fiskinn, þeir áttu líka árabát sem þeir réru líka á. Ýmislegt vann Björn á vetrum við uppskipun og annað hjá Kaupfélagi Austur Skagfirðinga. 1940 seldu þeir Jón og Björn Valbjörninn. 12. júní 1940 réðist Björn sem frystihússtjóri hjá Kaupfélaginu. Björn var fyrsti frystihússtjóri hjá K.A.S.H., þá var farið að frysta fisk, Björn var líka alla tíð sláturhússtjóri. Björn sagaði frosið kjöt ofaní Hofsósingja og sveitina þar um kring, allt með handsög fyrstu árin. Björn var í þessum störfum í 31. ár, eftir það fór hann á skrifstofu hjá Frystihúsinu og sá um allt bókhald fyrir það í nokkur ár, þá var Björn orðin 75. ára og hætti þá,
d. 25. des. 1998 á Sauárkróki.
– For.:
Björn Björnsson,
f. 1. maí 1873 á Atlastöðum, Svarfaðardalshr. Eyf. Björn bjó að hluta af Sandá í Svarfaðardal 1898-1903, bóndi í Göngustaðakoti 1903-1928 og aftur 1935-1948. 1938 var meðalbú hans reiknað 3. kýr 45. kindur og 2. hestar. 1959 flutti Björn til sonar síns á Hofsósi og var þar til æviloka.
d. 2. mars 1964 á Hofsósi,
– K.h 1 nóvember 1896.
Sigríður Jónsdóttir,
f. 25. nóv.1870 að Kóngsstöðum, Skíðadal, Svarfaðarhr. Eyf. Húsfreyja, Göngustaðakoti, Svarfaðardalshr. Eyf.
d. 23. jan.1947
– Börn þeirra:
a) Alfreð,f. 24. jan.1929.
b) Valdimar,f. 16. febr.1931.
c) Sólberg,f. 7. nóv.1932.
d) Björn,f. 4. des.1933.
e) Guðbjörg Ágústa,f. 25. nóv.1935.
f) Sigurður,f. 29. febr.1940.
g) Fanney Björk.f. 10. des.1943.
h) Kristín,f. 12. mars 1947.
Sjá um börn Steinunnar og Björns í niðjatali um Atlastaði í Svarfaðardal.
Heimildir:
Svarfdælingar.
Skagf.æviskrár.
M.B.L.
Íslendingabók.
Sig. Bj. og fl.