9.e Óli Garðar Þorláksson,
f. 29. mars 1920 á Gautastöðum í Stíflu, Skagaf.,
d. 15. des. 1921 á Gautastöðum.
– For.:
Jóna Sigríður Ólafsdóttir,
f. 27. júní 1893 á Gautastöðum í Stíflu, Skagaf., húsfreyja á Gautastöðum, hún ólst upp hjá foreldrum sínum, hún hafði mikla og háa söngrödd og átti því góða samleið með manni sínum. það var henni mikil eftirsjá þegar hún varð nauðug viljug að yfirgefa æskustöðvar og ættaróðal eftir meira en fimmtíu ára búsetu þar. Jóna var fremur lágvaxin og þétt með blá augu, skolhærð , skapgóð og létt í lund, en með ákveðnar skoðanir,
d. 16. des. 1976 á Siglufirði.
– M: 1. janúar 1914.
Þorlákur Magnús Stefánsson,
f. 1. jan. 1894 á Molastöðum í Fljótum, Skagaf., bóndi á Gautastöðum í Stíflu, Skagaf., 1914-1945, bóndi á Gautlandi í Fljótum, Skagaf., 1945-1971. Hann bjó yfir tónlistahæfileikum. Fyrst lærði hann á orgel hjá föður sínum sem var góður hljómlistamaður og söngmaður. Hann var í námi einn vetur á Akureyri og hjá Benedikti á Fjalli, sótti námskeið hjá söngmálastjóra Þjóðkirkjunar. Hann var organleikari í Barðskirkju og Knappsstaðarkirkju í Stíflu, Skagaf.,
d. 4. nóv. 1971.
Óli Garðar Þorláksson