Björn Björnsson

2. e               Björn Björnsson,
f. 17. jan. 1906 í Göngustaðakoti, Svarfaðardalshr., Eyf. Frystihússtjóri á Hofsósi. Björn gerðist nemi við  Hólaskóla 1925 og útskrifaðist þaðan 1927, enn þar kveiknaði ást þeirra Steinunnar og Björns. Á sumrin voru þau Björn og Steinunn á ýmsum stöðum sem vinnufólk, til Hofsós komu þau  um haustið 1928 og þar vinnur Björn sem verkamaður. Björn stofnar verkamannafélagið Ársæll um 1930 með Kristjáni Ágústssyni og Pétri frá Þangsstöðum, Björn var ritari félagsins. 1932 kaupa þeir Jón Ágústsson, mágur Björns trilluna Valbjörninn og róa á honum og salta fiskinn, þeir áttu líka árabát sem þei réru líka á. Ýmislegt vann Björn á með á vetrum við uppskipun og annað hjá Kaupfélagi Austur Skagfirðinga. 1940 seldu þeir Jón og Björn Valbjörninn. 12. júní 1940 réðist Björn sem frystihússtjóri hjá Kaupfélaginu. Björn var fyrsti frystihússtjóri hjá K.A.S.H., þá var farið að frysta fisk, Björn var líka alla tíð sláturhússtjóri. Björn sagaði fryst kjöt ofaní Hofsósingja og sveitina þar um kring, allt með handsög fyrstu árin. Björn var í þessum störfum í 31. ár, eftir það fór hann á skrifstofu hjá Frystihúsinu og sá um allt bókhald fyrir það í nokkur ár, þá var Björn orðin 75. ára og hætti þá
d. 25.des.1998 á Sauárkróki.
– For.: 
Björn Björnsson,
f. 1. maí 1873 á Atlastöðum, Svarfaðardalshr., Eyf., bóndi á Göngustaðakoti og Sandá í Svarfaðardal, Eyjaf.,

d. 2. mars 1964 á Hofsósi.
– K:   1. nóvember 1896.
Sigríður Jónsdóttir,

f. 25. nóv.1870 að Kóngsstöðum í  Skíðadal, Svarfaðarhr. Eyf., húsfreyja í  Göngustaðakoti, Svarfaðardalshr. Eyf.,
d. 23. jan. 1 947.
– For.:   
Jón Bjarnason,

f. 20. nóv. 1821 á Ytra-Kálfsskinni,  Árskóghr. Eyf., bóndi og silfursmiður á Grund, Jarðbrú og Kóngsstöðum í  Svarfaðardalshr. Eyf.,

d. 1. okt. 1875  á Kóngsstöðum í Skíðadal, Svarfaðardalshr. Eyf.
– K:  7. nóv. 1870.
Anna Jónsdóttir,

f. 12. sept. 1839  á Kóngsstöðum í Svarfaðardalshr. Eyf., húsfreyja og húskona Kóngsstöðum, Svarfaðardalshr. Eyf.,

d. 18. jan. 1916 í Göngustaðakoti, Svarfaðardalshr. Eyf.
– K:    23. desember 1928.
  Steinunn Ágústsdóttir,
f. 1. sept. 1909 í Grafarósi á Höfðaströnd, Skagf. Húsfreyja á Hofsósi. Steinunn var með stórt heimili við vórum 8. systkini og oft var marga í mat og á þeim tímum sem verið var að byggja upp  frystihúsið  þá voru margir aðkomu men sem voru í fæði hjá Steinunni, og margir eftirlitsmenn og allir þessir menn fengu fríttfæði hjá Steinunni og Birni. Þegar þetta er skrifað 02. 04. 1999 mun Steinunn vera síðust núlifandi þeirra sem fæddust í Grafarós, Skagaf. Steinunn og Björn áttu 70. ára brúðkaupsafmæli 23. 12. 1999, slíkur atburður mun vera næstum  mjög fátíður.
d. 3.okt. 2001 á Sauðárkróki.
For:. 
Ágúst Sigurðsson,

f. 31. ág. 1880 í Málmey á Skagafirði, bóndi á Arnarstöðum í Fellshr., Skagf., sjómaður Hofsósi,
d. 17. nóv. 1937 á Hofsósi.
– K:    1904.
Salbjörg Guðfinna Jónsdóttir,

f. 22. júní 1883 í Háakoti í Fljótum, Skagaf., húsfreyja í Grafarós og síðar á Hofsósi,
d. 24. febr. 1971.
Börn þeirra:
a)    Alfreð,f. 24. jan. 1929.
b)    Valdimar,f. 16. febr. 1931.
c)    Sólberg,f. 7. nóv. 1932.
d)    Björn,f. 4. des. 1933.
e)    Guðbjörg Ágústa,f. 25. nóv. 1935.
f)     Sigurður,f. 29. febr. 1940.
g)    Fanney Björk.f. 10. des. 1943.
h)   Kristín,f. 12. mars 1947.

Heimildir:
Svarfdælingar.
Skagf.æviskrár.
M.B.L.
Íslendingabók.
Sig. Bj. og fl.

 

Undirsidur.