Steinunn Ágústsdóttir

 

8.a                                                            Steinunn Ágústsdóttir,                  
f. 1. sept. 1909 í Grafarósi á Höfðaströnd, Skagf. Húsfreyja á Hofsósi. Steinunn var með stórt heimili og oft marga í mat og á þeim tímum sem verið var að byggja upp  frystihúsið  þá voru margir aðkomu men sem voru í fæði hjá Steinunni, og margir eftirlitsmenn og allir þessir menn fengu frítt fæði hjá Steinunni. Þegar þetta er skrifað 02. 04. 1999 mun Steinunn vera síðust núlifandi þeirra sem fæddust í Grafarós, Skagaf. Steinunn og Björn áttu 70. ára brúðkaupsafmæli 23. 12. 1999, slíkur atburður mun vera næstum  mjög fátíður,
d. 3. okt. 2001 á Sauðárkróki.
– For.:
Salbjörg Guðfinna  Jónsdóttir,
f. 22. júní 1883 í Háakotik, Fljótum, Skagf. Salbjörg var góð og gæðaleg og var hrein og bein sagði sína meiningu og allt var hvítt og skrúbbað hjá henni, húsfreyja í  á Arnarstöðum, í Sléttuhlíð, Skagaf., Grafarósi og Hofsósi Skagaf.,

d. 24. febr. 1971 á Sauðárkróki.
– M:      1904
Sigurður Ágúst Sigurðsson,
f. 31. ág. 1879 í Málmey, bóndi á Arnarstöðum 1900-1904 sjómaður frá Grafarós 1910.

d. 17. nóv. 1937 í Hofsós.
– M:  23. desember 1928.
Björn Björnsson,
f. 17. Jan. 1906 í Göngustaðakoti, Svarfaðardalshr., Eyf. Frystihússtjóri á Hofsósi. Björn gerðist nemi við  Hólaskóla 1925 og útskrifaðist þaðan 1927, enn þar kveiknaði ást þeirra. Á sumrin voru þau Björn og Steinunn á ýmsum stöðum sem vinnufólk, til Hofsós komu þau  um haustið 1928 og þar vinnur Björn sem verkamaður. Björn stofnar verkamannafélagið Ársæll um 1930 með Kristjáni Ágústssyni og Pétri frá Þangsstöðum, Björn var ritari félagsins. 1932 kaupa þeir Jón Ágústsson, mágur Björns trilluna Valbjörninn og róa á honum og salta fiskinn, þeir áttu líka árabát sem þeir réru líka á. Ýmislegt vann Björn á  vetrum við uppskipun og annað hjá Kaupfélagi Austur Skagfirðinga á Hofsósi. 1940 seldu þeir Jón og Björn Valbjörninn. 12. júní 1940 réðist Björn sem frystihússtjóri hjá Kaupfélaginu. Björn var fyrsti frystihússtjóri hjá K.A.S.H., þá var farið að frysta fisk, Björn var líka alla tíð sláturhússtjóri. Björn sagaði frosið kjöt ofaní Hofsósingja og sveitina þar um kring, allt með handsög fyrstu árin. Björn var í þessum störfum í 31. ár, eftir það fór hann á skrifstofu hjá Frystihúsinu og sá um allt bókhald fyrir það í nokkur ár, þá var Björn orðin 75. ára og hætti þá,
d. 25. des. 1998 á Sauárkróki.
For.:  
Björn Björnsson,
f. 1. maí 1873 á Atlastöðum, Svarfaðardalshr. Eyf. Björn bjó að hluta  af Sandá í Svarfaðardal 1898-1903, bóndi  í Göngustaðakoti 1903-1928 og aftur 1935-1948. 1938 var meðalbú hans reiknað 3. kýr 45. kindur og 2. hestar. 1959 flutti Björn til sonar síns á Hofsósi og var þar til æviloka.
d. 2. mars 1964 á Hofsósi,
– K:1. nóvember 1896.
Sigríður Jónsdóttir,
f. 25. nóv. 1870 að Kóngsstöðum, Skíðadal, Svarfaðardhr. Eyf. Húsfreyja, Göngustaðakoti, Svarfaðardalshr. Eyf.
d. 23. jan.1947
Börn þeirra:
a)    Alfreð,f. 24. jan. 1929.
b)    Valdimar,f. 16. febr. 1931.
c)    Sólberg,f. 7. nóv. 1932.
d)    Björn,f. 4. des. 1933.
e)    Guðbjörg Ágústa,f. 25. nóv. 1935.
f)     Sigurður,f. 29. febr. 1940.
g)    Fanney Björk.f. 10. des. 1943.
h)    Kristín,f. 12. mars 1947.
Sjá um Steinunni og Björn í niðjatali um Atlastaði í Svarfaðardal.