Jón Pétursson

 

7.n                                                Jón Pétursson,
f. 1870 í Barðsókn í Fljótum, Skagaf.,, var hjá foreldrum sínum á Sléttu í Fljótum, Skagaf., 1890, ókv. og mjög vel gefinn bæði til sálar og líkama. Hann fórst með skipinu Helga frá Staðarhóli í Siglufirði,
d.  í ág. 1898.
– For.:
Pétur Jónsson,
f. 20. okt. 1836 á Sléttu í Fljótum, Skagaf. Pétur ólst upp hjá foreldrum sínum  á  Sléttu og Utanverðunesi í Hegranesi, Skagaf., en þau þóttu jafnan mætasta fólk. Pétur var í vist á ýmsum stöðum til þrítugs. Bóndi á Sléttu 1864-93, brá þá búi og fluttist til Guðnýar dóttur sinnar á Gautastöðum í Stíflu, Skagaf., og var þar til æviloka. Pétur var lágur maður og þrekinn, mikill dugnaðamaður og sjógarpur mikill, vel gefinn töluverður skapmaður. Hann átti helming í sexmannafari, og virðist hafa komist vel af. Um Pétur var ort í Bændarímum í Fljótum.
Pétur  Sléttu passar best,
prúður í hegðan sinni,
glaður er og gætinn,
sést geirabör ráðsvinni.,
d. 1909 á Gautastöðum í Stíflu, Skagaf.
– K:      1864.
Björg Stefánsdóttir,
f. um 1832 á Kaldrana á Skaga, húsfreyja á Sléttu í Fljótum, Skagaf., hún var fremur lítil kona, kvik í hreifingum og vel gefinn,
d. 1912.