6.f Ólafur Jónsson,
f. 1838, verkamaður á Stóra-Grindli í Fljótum, Skagaf.,
d. 14. jan. 1863, drukknaði í Hákarlalegu með Þorláki Þorlákssyni, bónda á Lambanes-Reykjum í Fljótum, Skagaf.
– For.:
Jón Ólafsson,
f. 1808 á Sléttu í Fljótum, Skagaf. Jón tók við búi af afa sínum á Sléttu árið 1830, bjó þar til 1854 í Utanverðunesi í Hegranesi, Skagaf., 1854-58 í Saurbæ í Fljótum, Skagaf. 1859-60, húsmaður á Sléttu fyrst hjá Sigríði dóttur sinni og síðar hjá Pétri syni sínum til æviloka. Jón þótti mætur maður talinn allgreindur og vel að sér. Hann átti Sléttu bjó þar góðu búi árið 1853 átti hann 5 kýr 70 kindur og fjögur hross. Á Utanverðunesi, Skagaf., rak hann stórbú. Sjóinn stundaði hann jafnhliða búskapnum og átti altaf báta. í Utanverðunesi var hann með mikla garðrækt og mældist matjurtagarður hans 100 ferfaðmar að flatarmáli árið 1857. Jón var jarðsettur í sinni gömlu sóknarkirkju í Stór-Holti í Fljótum, Skagaf., og var á leiði hans settur legsteinn sem höggvinn var af Myllu-Kobba, kunnum hagleiksmanni í Fljótumn
d. 1873.
-K:
Ingibjörg Þórðardóttir,
f. 1808 á Illugastöðum í Flókadal, Skagaf. Ingibjörg var góð kona og gestrisin. Skuldlaust bú hennar var virt á 1.345 rd. og 5 sk.,
d. 1857 á Utanverðunesi í Skagaf.
Ólafur Jónsson