Guðrún Björnsdóttir

  1. b                     Guðrún Björnsdóttir,
    f. 12. nóv. 1863 að Atlastöðum í Svarfaðardalshr., Eyf., húsfreyja, Atlastöðum og Grund í Þorvaldsdal, Eyjaf. Guðrún var sérstök fríðleikskons, þægileg í viðmóti, en veikbyggð kona, þau Friðfinnur bjuggu góðu búi á Grund og voru annáluð fyrir þrifnað og snýrtimensku,
    d. 8. maí 1897 að Grund í Þorvaldsdal, Árskógshr. Eyf.
    – For.: 
    Björn Sigurðsson
    ,
    f. 18. ágúst 1829,

    d. 11. oktober 1905.
    Björn er fæddur á Þverá í Skíðadal, bóndi á Atlastöðum í Svarfaðardalshr. Eyjaf. Árið 1860 flutti hann með börnin að Atlastöðum til fósturforeldra sinna, sem reyndust þeim frábærlega vel, þar tók Björn sem var einkaerfingi Páls Þorkelssonar og Guðrúnar Jónsdóttur við búinu á Atlastöðum  og bjó þar góðu búi.
    Björn kvæntist fljótlega eftir lát Önnu og bjó með seinnikonu sinni á Atlastöðum. Eignarjörð þeirra til 1890 er tengdasonur hans keipti Atlastaði.
    Bú Björns á Atlastöðum var 4. kýr 80. fjár og 5 hross. Myndarlegan  torfbæ með timburþili reisti hann 1878 og stóð hann enn um 1950.
    Björn bjó á 2/3 hl. Hóls í í Svarfaðardal 1856-1860.
    – Seinnikona:
    Sigríður Jónasdóttir,
    f. 14. ágúst 1831 á Þverá í Staðarbyggð, Öngulsstaðarhr, Eyf. Seinnikona Björns. Barn Sigríðar Jónasdóttur fyrir giftingu með Jóni Halldórssyni ( lækni ) í Klaufabrekkukoti var Þórdís f. 1.september 1859 d. 18. júlí 1861,

    d. 16. janúar 1907 að Atlastöðum, Svarfaðardalshr. Eyjaf., Húsfreyja á Atlastöðum í Svarfaðardal, Eyjaf.
    – M:  21. september 1883.
    Friðfinnur Sveinn Jónsson,
    f. 20. júní 1850 að Karlsá Svarfaðardalshr., Eyf., bóndi á Atlastöðum, Svarfaðardalshr., og Grund Árskógshr.,
    d. 12. ágúst 1925 að Böggviðsstöðum.
    For:.
    Jón Jónsson,

    f. 1822 að Hóli, Upsaströnd, Svarfaðardalshr., bóndi á Hóli, Brúnastöðum í Fljótum, Arnarstöðum í Sléttuhlíð, Skagaf.,
    d. 17. febr. 1906 að Hóli, Upsaströnd.
    – K:  6. júní 1842.
    Gunnhildur Hallgrímsdóttir,

    f. 10. sept. 1814 að Stóru-Hámundarstöðum,  Árskógshr., húsfreyja á Hóli, Brúnastöðum, Holtshr., Skagf.,
    d. 21. okt. 1910 að Hóli, Svarfaðardalshr. Eyf.
    – Börn þeirra:
    a)    Sigríður,f. 23. júní 1884.
    b)    Jónína Gunnhildur,f. 8. sept. 1885.
    c)    Guðrún, f. 14. nóv. 1886.
    d)    Björn, f. 26. febr. 1888.
    e)    Páll Friðvin, f. 22. maí 1889.
    f)     Guðný,f. 1. ág. 1890.
    g)    Kristjana,f. 1. ág. 1890.
    h)   Kristjana Guðný,f. 9. júlí 1892.
    i)     Drengur,f. 1894.
    j)      Jón Kristinn,f. 20. jan. 1896.
    k)    Ástríður Fanney,f. 8. apr. 1897.

 

Undirsidur.