Jón Ólafsson

5.a                                                        Jón Ólafsson,
f. um 1808 á Sléttu í Fljótum, Skagaf. Jón tók við búi af afa sínum á Sléttu  árið 1830, bjó þar til 1854 í Utanverðunesi  í Hegranesi, Skagaf., 1854-58 í Saurbæ í Fljótum, Skagaf. 1859-60, húsmaður á Sléttu fyrst hjá Sigríði dóttur sinni og síðar hjá Pétri syni sínum  til æviloka. Jón þótti mætur maður talinn allgreindur  og vel að sér. Hann átti Sléttu bjó þar góðu búi  árið 1853 átti hann 5 kýr 70 kindur og fjögur hross. Á Utanverðunesi, Skagaf., rak hann stórbú. Sjóinn stundaði hann jafnhliða búskapnum og átti altaf báta. í Utanverðunesi var hann með mikla garðrækt og mældist matjurtagarður hans 100 ferfaðmar að flatarmáli árið 1857. Jón var jarðsettur í sinni gömlu sóknarkirkju í Stór-Holti  í Fljótum, Skagaf., og var á leiði hans settur legsteinn sem höggvinn var af Myllu-Kobba, kunnum hagleiksmanni í Fljótumn
d. 1873 á Sléttu í Fljótum, Skagaf.
– For.:
Ólafur Ólafsson,
f. 1780, Ólafur fór ungur inní Fljót og kvæntist þar og bjó á Sléttu í Fljótum,1809-1810 á Sjöundastöðum í Flókadal, Flæjótum, Skagaf.,1810-11, síðan á Steinhóli 1811-15, eða til dauðadags. Ólafur var talinn röskur maður og formaður góður, réri skipi sínu úr Mósvík. Hann fórst við tíundamann í legu,
d. 20. júní 1815.
– K:
Guðný Jónsdóttir,
f. um 1780, húsfreyja, á ´Steinhóli  í Flókadal og Sléttu í Fljótum, Skagaf. Guðný  giftist aftur eftir lát Ólafs, Markúsi Jónssyni 1823, bónda á Laugarlandi í Fljótum, Skagaf.,og síðar á Keldum í Sléttuhlíð, Skagaf.
-K:
Ingibjörg Þórðardóttir,
f. 1808 á Illugastöðum í Flókadal, Skagaf. Ingibjörg var góð kona og gestrisin. Skuldlaust bú hennar var virt á 1.345 rd. og 5 sk.,
d. 1857 á Utanverðunesi í Skagaf.
– For.:
Þórður Pétursson,

f. 1765, bóndi í Engidal og Reykjarhólum á Bökkum í Fljótum, Skagaf., og Illugastöðum í Fljókadal, Skagaf., var hreppstjóri 1806-8,
d. 1811.
– K:
Hallfríður Björnsdóttir Jónsdóttir,

f. 1769, húsfreyja í Engidal og víða, var talin laundóttir sr. Jóns á Hvanneyri,
d. 3. des. 1851.
Börn þeirra:
a)    Sesselja,f. 1830.
b)    Guðný,f. 1831.
c)    Sigríður,f. 1832.
d)    Sesselja,f. 1834.
e)    Björn,f. 1835.
f)    Ólafur,f. 1838.
g)   Sigríður,f. 1839.
h)   Hallfríður,f. 1841.
i)    Bjarni,f. 1842.
j)    Jón,f. 1844.
k)   Stefán,f. 1845.
l)    Ólöf,f. 1846.
m)   Stefán,f. 29. des. 1849.
Barn hans:
n)    Pétur,f. 1836.

Undirsidur.