7.a Ólafur Jónsson,
f. 26. ág. 1876, á Mjóafelli í Stíflu, Skagaf.,var húsmaður og sjómaður í Sigurðarbæ á Hofsósi 1910 þá ókv. Ólafur bjó á Naustum á Hofsósi og andaðist þar.
– For.:
Jón Jónsson,
f. 1844, Jón var bóndi á Berghyl í Fljótum, Skagaf., fæddur á Sléttu í Fljótum, Skagaf. Jón drukknaði við uppskipun úr skipi Terevie á Haganesvík. Jón ólst upp hjá foreldrum sínum á Sléttu og Utanverðunesi í Hegranesi, Skagaf., hann var verkamaður hjá Pétri bróður sínum á Sléttu 1870 en á Móafelli í Stíflu, Skagaf. 1876, bóndi á Hamri 1877-83, í Háakoti í Stíflu, Skagaf., 1883-86 og Berghyl í Fljótum 1887-97, húsmaður þar 1897-98, bóndi á Barðsgerði í Fljótum, Skagaf., 1898-1902, húsmaður á Lambanes-Reykjum í Fljótum, Skagaf., frá 1902, en síðast hjá Stefáni bróður sínum í Efra-Haganesi, Skagaf., Jón var fremur fátækur alla tíð og sæmilega vel gefinn,
d. 10. des. 1911.
– K: 1876.
Kristín Ingibjörg Eiríksdóttir,
f. 14. drs. 1845, húsfreyja víða í Fljótum,
d. 1. maí 1914 í Höfn í Fljótum, Skagaf.