5.h Ólafur Þorsteinsson,
f. 1. des. 1819 á Staðarhóli á Siglufirði. Ólafur reisti bú í tvýbíli á Staðarhóli og bjó þar 1841-1842, bóndi á Ámá í Héðinsfirði, Eyjaf., 1842-47 á Leiningi 1847-49. 1853 fóru þau að Höfða á Höfðaströnd, Skagaf., þar voru þau í tvö ár, fóru síðan aftur á heimaslóðir. Ólafur fórst með Haffrúnni, Ólafur var annnálað hraustmenni og góður skíðamaður. Eitt sinn var hann fengin til að fara með líkistu úr Héðinsfirði til greftunar á Hvanneyri kistunni var komið fyrir á sleða sem Ólafur skildi draga á eftir sér á skíðum yfir Hólsskarð. Þegar hann kom upp á skarðið þótti honum sleðin mundi tefja för sína niður. Leysti hann því kistunna af sleðanum og skildi hann eftir við kennileiti, en brá bandi um kistunna og snaraði henni á bak sér, steig á skíðin og rendi sér niður á jafnsléttu og kistunni hélt hann síðan út að Hvanneyri.
d. 10. apr. 1864 í Hvammsókn í Laxárdal, Skagaf.
– For.:
Þorsteinn Ólafsson,
f. 1771. Bóndi á Staðarhóli í Siglufirði. Þorsteinn bjó góðu búi og stundaði sjó sókn. Hann var hákarlaformaður og stýrði eigun skipi jafnt til hákarls og fiskja. Þorsteinn átti barn með vinnukonu sinni Herdísi Hallsdóttir, sem síðar var húsfrú á Hóli, barnið hét jón. Fyrir þetta brot fékk Þorsteinn hórsekt á þingi 1815.
d. 30. apr. 1826 á Staðarhóli.
– K: 24. júní 1799
Katrín Bjarnadóttir,
f. 1778, húsfreyja á Staðarhóli á Siglufirði,
d. 14. apr. 1831 á Staðarhóli.
– K: 24. september 1840
Guðrún Magnúsdóttir,
f. 23. jan. 1806 í Skarðsdalskoti í Siglufirði.
– For.:
Magnús Oddsson,
f. um 1765 á Dalabæ í Fljótahreppi, bóndi í Skarðsdalskoti,
d. 28. apr. 1862,
– K:
Margrét Guðmundsdóttir,
f. um 1775 á Ámá,
d. 3. okt. 1846.
– Börn þeirra:
a) Jón,f. 28. mars 1841.
b) Lilja,f. 20. júní 1842.
c) Sólveig,f. 11. ág. 1843.
d) Þorsteinn,f. 8. sept. 1845.
e) Þorvaldur,f. 20. sept. 1847.
– Barnsmóðir:
Hólmfríður Hallgrímsdóttir,
f. 1832 á Þverá í Fjörðum,
d. 1897 á Sléttu í Fljótum, Skagaf.
– For.: XX
– Barn þeirra:
f) Helgi,f. 30. des. 1852.